Ýsugengdin vekur mikla athygli

Deila:

Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE hafa fiskað afar vel að undanförnu og hafa aflabrögð verið með þeim hætti að hægja hefur þurft á veiðum.

Bergey VE landaði fullfermi í Grindavík á föstudag og var Jón Valgeirsson skipstjóri ánægður með túrinn. „Við vorum að veiðum á Selvogsbankahaus í blíðuveðri og það var sannkölluð afbragðsveiði. Þarna fékkst langmest af ýsu en síðan var dálítið af þorski og ufsa með í aflanum. Veiðin var jöfn og fengust yfirleitt um 10 tonn í holi. Það eru mörg skip í ýsunni á þessum slóðum,“ segir Jón.

Vestmannaey VE landaði einnig fullfermi í Grindavík á laugardag eftir stuttan túr. Birgir Þór Sverrisson skipstjóri segir veiðina hafa verið óvenju góða. „Þessi túr var stuttur. Við vorum um einn og hálfan sólarhring að veiðum. Það var byrjað á Selvogsbanka og þar fékkst blandaður afli en síðan færðum við okkur á Tána til þess að ná í ýsu. Það var sannkölluð mokveiði og satt að segja vekur ýsugengdin mikla athygli. Það virðist vera mjög gott ástand á ýsunni og hana er að finna í miklu magni á stóru svæði,“ segir Birgir Þór.

Vegna mikillar veiði hafa skipin legið lengur í höfn en venja er að löndun lokinni.

Bergey hélt aftur til veiða í fyrrakvöld þar sem áhersla verður lögð á karfa, en Vestmannaey er væntanleg á miðin á ný á föstudag.

Deila: