Góður túr hjá Sighvati í blíðuveðri

Línuskipið Sighvatur kom til Grindavíkur í gærmorgun með 105 tonna afla eftir ágæta veiðiferð. Uppistaða aflans var langa og þorskur, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar.
Heimasíðan ræddi við Aðalstein Rúnar Friðþjófsson skipstjóra sem segir veiðarnar hafa farið fram í Eyjafjallasjónum, mest á Hólshrauni. „Við vorum í Eyjafjallasjónum, mest á Hólshrauni. Lagnirnar í túrnum voru fimm talsins og var aflinn svipaður í hverri lögn. Það var blíðuveður allan túrinn og ég held að megi fullyrða að þetta hafi veðurfarslega verið besti túr frá áramótum. Það er ekki hægt að vera annað en sáttur við þennan túr,“ segir Aðalsteinn.
Sighvatur hélt aftur til veiða í gærkvöldi og stóð til að reyna fyrir sér á Síðugrunnshólfi og Ingólfshöfðahólfi, sem hafa verið lokuð um tíma.
