Strandveiðar fá aukið svigrúm

Meiri hluti atvinnuveganefndar leggur til að frumvarp um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða verði samþykkt með verulegum breytingum, þar sem megináherslan er lögð á tímabundna jöfnunarheimild til að styðja við strandveiðar.
Í nefndaráliti kemur fram að heimilað verði að ráðstafa allt að 2.700 tonnum af óslægðum þorski til strandveiða til viðbótar við úthlutað aflamagn á fiskveiðiárinu. Heimildin er skilgreind sem tímabundin brúarráðstöfun á meðan unnið er að nýju skipulagi á ráðstöfun hins svokallaða 5,3% kerfis og er gert ráð fyrir að jöfnun þessa magns ljúki eigi síðar en á fiskveiðiárinu 2029/2030.
Meiri hlutinn leggur jafnframt áherslu á að þessi jöfnun bitni ekki á öðrum lögbundnum verkefnum innan 5,3% kerfisins, svo sem verkefnum Byggðastofnunar, og undirstrikar mikilvægi þess að tryggja aflaheimildir sem duga til 48 daga strandveiða til framtíðar.
Í áliti nefndarinnar er einnig brugðist við gagnrýni sem fram kom í umsögnum um afnám línuívilnunar og rækju- og skelbóta. Meiri hlutinn leggur til að þau ákvæði verði felld brott úr frumvarpinu og að slík mál verði tekin til skoðunar síðar í heildarendurskoðun á byggðakerfi fiskveiðistjórnunar.
Samkvæmt breytingartillögum nefndarinnar falla því út nokkur ákvæði frumvarpsins og fyrirsögn þess breytist þannig að hún taki einungis til jöfnunarheimildar.
Málið var til umfjöllunar hjá atvinnuveganefnd þar sem kallað var eftir sjónarmiðum meðal annars frá ráðuneyti, Landssambandi smábátaeigenda og Hafrannsóknastofnun og bárust alls ellefu umsagnir, að því er fram kemur í nefndarálitinu.
