Vertíðin tengist jólunum í Portúgal

Deila:

Vetrarvertíðin á Íslandsmiðum er nú á lokasprettinum og hefðbundin vertíðarlok nálgast 11. maí, þegar hrygningu þorsksins lýkur að mestu og aflabrögð fara dvínandi. Þetta kemur fram í nýrri umfjöllun á vef Vinnslustöðvarinnar.

Þar segir að síðustu mánuðir hafi verið annasamir bæði á sjó og í landi þar sem „keppst er við að nýta tímann vel á meðan vertíðarþorskurinn er sem bestur – stór og góður fiskur sem skilar verðmætum afurðum.“

Á sama tíma og vertíðinni lýkur hér á landi tekur við önnur törn sunnar í Evrópu. Hjá Grupeixe, dótturfélagi Vinnslustöðvarinnar í Portúgal, hefst annasamt tímabil þar sem afurðir vertíðarinnar eru teknar til frekari vinnslu. „Afurðum vertíðarinnar er skipað út jafnharðan og þær eru tilbúnar, og þar fer fiskurinn í þurrkun og pökkun áður en honum er dreift til kaupenda,“ segir í greininni.

Sérstaklega eykst eftirspurnin þegar líður að jólum. „Á aðfangadagskvöld neyta Portúgalar um 5.000 tonna af söltuðum þorski,“ og því selst mikið magn á síðustu vikum fyrir hátíðirnar. Bent er á að jólaundirbúningur í Portúgal hefjist í raun snemma árs – á Íslandsmiðum.

Í umfjölluninni er lögð áhersla á samhengi virðiskeðjunnar frá veiðum til neyslu og framlag starfsfólks á öllum stigum hennar. „Sjómenn, fiskvinnslufólk og starfsfólk í Portúgal leggja öll sitt af mörkum til að tryggja að afurðirnar komist alla leið – frá köldum sjó í norðri til hátíðarborða í suðri,“ segir þar.

Að lokum er minnt á mikilvægi vinnandi fólks, sérstaklega í tengslum við 1. maí, og hversu víðtækt og samtengt starf liggur að baki því að koma íslenskum sjávarafurðum á erlenda markaði.

Deila: