813 bátar hefja strandveiðar – tölfræði fyrsta veiðidags

Deila:

Strandveiðar hófust í dag en 813 skip eru skráð með strandveiðileyfi, samkvæmt vef Fiskistofu. 46% bátanna er skráður á svæði A.

Eins og við má búast var meðalaflinn hæstur á svæði A, en fyrri hluti veiðitímabilsins er bestur á svæði A. Svæðin fyrir austan land koma sterk inn þegar líður á sumarið, ef potturinn endist. Bátarnir á svæði A lönduðu að jafnaði 661 kílói af þorski eftir daginn en hafa ber í huga að ekki hafa allar hafnir skilað inn tölum. Um er að ræða tölur frá 30 löndunarhöfnum.

Athygli vekur að aðeins 6,5% bátanna 322 sem lönduðu í dag (samkvæmt skráningu Fiskistofu í lok dags) náðu 750 kílóum af þorski eða meira. Fáir voru því með skammtinn af þorski. 84 bátar af 322 lönduðu 700 kílóum af þorski eða meira. Ítrekað skal að ekki hafa allar hafnir skilað inn tölum.

Svæði A 661,2 kg
Svæði B 540,4 kg
Svæði C 501,6 kg
Svæði D 554,6 kg

 

Þegar rýnt er í meðalafla þorsks eftir löndunarhöfnum sést að meðalvigt þorsks var mest í Ólafsvík í dag, eða 723 kíló að jafnaði í 31 löndun. Á eftir fylgja Grundarar og Hólmarar. Snæfellsnesið gaf með öðrum orðum mestan þorskafla að jafnaði. Hér fyrir neðan sést löndunarhöfn, meðalafli þorsks og fjöldi landana (aðeins hafnir með 10 eða fleiri landanir eru teknar með).

Ólafsvík 723,5 kg 31 löndun
Grundarfjörður 711,7 kg 22 landanir
Stykkishólmur 667,3 kg 12 landanir
Hornafjörður 660,4 kg 16 landanir
Bolungarvík 657,3 kg 39 landanir
Patreksfjörður 656,7 kg 29 landanir

 

Athygli vekur að samkvæmt skráningu Fiskistofu lönduðu fjórir bátar meira en 200 kílóum af umframafla. Þau kíló dragast frá heildarpotti strandveiðiaflans, eins og önnur, en útgerðirnar eru sektaðar um sem nemur meðalverði dagsins á þorski pr. kíló. Bátarnir eru, samkvæmt Fiskistofu, Hringur SH (277 kg umfram), Neisti HU (223 kg umfram), Gullfaxi SH (215 kg umfram) og Hjördís NS (208 kg umfram). Alls komu 11 tonn af umframafla að landi í dag, ef mið er tekið af þeim 322 löndunum sem búið er að skrá á gagnavef Fiskistofu.

Deila: