Fyrsta skipið í Vör

Skemmtiferðaskipið Le Commandant Charcot kom til Reykjavíkur í dag og eru farþegar þess og áhöfn þau fyrstu til að nýta Vör, nýja fjölnota farþegamiðstöð Faxaflóahafna við Viðeyjarsund. Þetta markar tímamót í móttöku skemmtiferðaskipa í höfuðborginni, að því er fram kemur í tilkynningu.
Vör er fyrsta farþegamiðstöðin hérlendis sem er sérstaklega byggð fyrir þjónustu við farþega skemmtiferðaskipa og jafnframt fyrsta slík miðstöð sem rís í Reykjavík í 60 ár. Formleg opnun hennar fer fram síðar í mánuðinum, en nokkur minni skip munu fram að því nýta aðstöðuna.
Le Commandant Charcot, sem tekur um 250 farþega, hefur um árabil sótt Reykjavík heim og er sérhannað leiðangursskip til siglinga á norðurslóðum. Skipið kom nú með farþega sem ljúka ferðalagi sínu hérlendis og tekur jafnframt á móti nýjum farþegum áður en haldið er í nýja siglingu til Grænlands. Með þessu er Vör nýtt til farþegaskipta þar sem ferðamenn stíga frá borði og nýir koma um Keflavíkurflugvöll.
Með tilkomu Varar er stefnt að bættri þjónustu við erlenda gesti og að fjölga svokölluðum skiptifarþegum sem hefja eða ljúka ferð sinni hér á landi og dvelja því lengur. Miðstöðin leysir af hólmi tímabundna aðstöðu á hafnarsvæðum Faxaflóahafna og skapar betri aðstöðu fyrir móttöku, öryggisafgreiðslu og þjónustu við fjölda ferðamanna.
Yfir vetrarmánuðina, frá október til mars, fær Vör annað hlutverk sem vettvangur viðburða, þar sem hún getur tekið allt að 2.000 gesti og um 900 í sæti.
Faxaflóahafnir reka stærstu hafnir landsins og leggja áherslu á að efla tengingu Íslands við umheiminn með þróun skilvirkrar og öruggrar hafnarstarfsemi.
