Annir í Grindavíkurhöfn

Deila:

Mikil umsvif eru í Grindavíkurhöfn þessa dagana þar sem bátar koma að landi með góðan afla og hafist er handa við löndun um leið og þeir leggja að bryggju. Hjá Vísi er unnið af krafti bæði í frystihúsi og salthúsi enda næg verkefni fram undan. Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar.

Ísfisktogarinn Birtingur NK kom til Grindavíkur í gær með 114 tonna afla. Einar Ólafur Ágústsson skipstjóri segir að veiðarnar hafi gengið vel á köflum og farið fram á nokkrum svæðum.

„Aflinn var mest þorskur, ýsa og ufsi. Við byrjuðum við Eldeyna en færðum okkur þaðan á Síðugrunn, síðan á Höfðann og loks í Berufjarðarálinn. Það veiddist mjög vel á Höfðanum en í Berufjarðarálinn var ætlunin að sækja ufsa sem gekk ekkert sérstaklega vel. Í túrnum var fínasta veður,“ segir Einar Ólafur.

Í morgun var síðan verið að landa úr línuskipinu Sighvati GK sem kom með 75 tonna afla eftir fimm lagnir. Að sögn Aðalsteins Rúnars Friðþjófssonar skipstjóra var aflinn fjölbreyttur.

„Þetta var langa, ýsa, keila og þorskur. Við lögðum fjórum sinnum á Síðugrunni en síðasta lögnin var tekin suður af Surti. Þetta var heldur tíðindalítill túr í blíðuveðri,“ segir Aðalsteinn Rúnar.

Birtingur hélt aftur til veiða í gærkvöldi og Sighvatur heldur til veiða í kvöld.

Deila: