Vísitala þorsks ekki lægri frá 2011

Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum fór fram dagana 25. febrúar til 23. mars síðastliðinn. Togararnir Breki VE-61 og Þórunn Sveinsdóttir VE-401 tóku þátt í verkefninu ásamt rannsóknaskipunum Árna Friðrikssyni HF-200 og Þórunni Þórðardóttur HF-300. Markmið mælingarinnar er að meta breytingar á stærð botnlægra fiskistofna og vakta útbreiðslu þeirra og líffræðilegt ástand. Sambærilegar mælingar hafa verið framkvæmdar árlega frá árinu 1985.
Niðurstöðurnar sýna að stofnvísitala þorsks hefur lækkað frá hámarkinu árið 2017 og er nú sú lægsta frá árinu 2011. Fjöldavísitala þorsks sem er 56 sentimetrar eða minni var undir meðaltali, en vísitala stærsta þorsksins, 80 sentimetra og stærri, er enn yfir meðaltali rannsóknatímans þrátt fyrir lækkun síðustu tveggja ára.
Fram kemur að magafylli þorsks hafi verið nálægt meðaltali og að loðna hafi verið rúmlega helmingur af fæðu þorsks í öllum stærðarflokkum. Loðna fannst helst í fæðu þorsks á svæðinu frá Suðausturlandi að Vestfjörðum en nær engin loðna fannst í þorskmögum fyrir norðan og austan land.
Stofnvísitala ýsu hækkaði frá 2016 til 2023 og þrátt fyrir lækkun síðustu tveggja ára er hún enn yfir meðaltali rannsóknatímans. Fjöldavísitala ýsu sem er 25 sentimetrar eða minni hækkaði og mældist sú fjórða hæsta frá upphafi mælinga árið 1985. Meira var af loðnu í mögum stórrar ýsu, 61–80 sentimetra, en svipað magn í minni ýsu miðað við síðasta ár. Loðna fannst helst í ýsumögum í Faxaflóa og við Breiðafjörð.
Stofnvísitala ufsa lækkaði og var svipuð og á árunum 2009–2011. Litlar breytingar urðu hins vegar á vísitölum hlýra, skarkola og gullkarfa. Fjöldavísitala gullkarfa sem er 4–11 sentimetrar hækkaði þó og hefur ekki verið hærri síðan árið 1993.
Stofnvísitala steinbíts hefur lækkað síðustu þrjú ár og mældist nú sú lægsta frá árinu 2013. Á móti kemur að stofnvísitölur keilu, blálöngu og löngu voru meðal þeirra hæstu frá upphafi mælinga. Einnig voru fjöldavísitölur yngri lengdarflokka þessara tegunda meðal þeirra hæstu frá upphafi.
Frekari upplýsingar og niðurstöður má finna á stofnmælingavef Hafrannsóknastofnunar. Farið verður yfir helstu niðurstöður mælingarinnar og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár kynnt föstudaginn 12. júní 2026.


