Vörður kynnir nýja strandveiðatryggingu

Deila:

Vörður tryggingar og Landssamband smábátaeigenda hafa átt í farsælu samstarfi sem miðar að því að bjóða félagsmönnum hagstæðari kjör á tryggingum. Úr því samstarfi hefur nú orðið til ný strandveiðatrygging, sérsniðin að þörfum þeirra sem stunda eingöngu strandveiðar. Frá þessu segir á vef Landssambands smábátaeigenda.

Þar segir að tryggingin feli í sér áhafnatryggingu og smábátatryggingu, sem veiti víðtæka vernd fyrir bæði áhöfn og bát. Þá sé einnig hægt að bæta við vélatryggingu, svo lengi sem vélbúnaður sé ekki eldri en 12 ára.

Helsta nýjungin felst að sögn í því að ársiðgjaldið er stillt í takt við raunverulega notkun á strandveiðitímabilinu. Þannig losna smábátaeigendur við að virkja eða fella trygginguna úr gildi fyrir og eftir strandveiðitímabilið og báturinn því tryggður allt árið hvort sem hann er í notkun eða í landi.

Markmiðið með þessari nýjung er að bjóða tryggingu sem er einföld, skýr og í góðu samræmi við raunverulegar þarfir þeirra sem starfa við strandveiðar.

Nánari upplýsingar um strandveiðatrygginguna má finna á vef Varðar.

Strandveiðatrygging – Vörður

Deila: