Nemendur Sjávarútvegsskóla GRÓ munu á næstu dögum kynna alls 21 rannsóknarverkefni sem þeir hafa unnið að í vetur. Verkefnin eru meðal annars unnin í samstarfi við sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar. Þetta kemur fram á vef Hafró. Þaðan er meðfylgjandi mynd líka fengin.
Hafrannsóknastofnun heldur utan um tvær af fjórum sérlínum skólans, annars vegar stofnstærðarlínuna undir stjórn Warsha Singh vistfræðings á uppsjávarsviði og hins vegar fiskeldislínuna sem Theódór Kristjánsson sérfræðingur í erfðafræði stýrir.
Kynningarnar eru opnar öllum og segir á vef Hafrannsóknastofnunar að þær geti verið sérstaklega áhugaverðar fyrir þá sem láta sig varða alþjóðlegt þróunarsamstarf, sjávarútveg og fiskeldi.
Hægt verður að fylgjast með kynningunum í eigin persónu í höfuðstöðvum Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði eða í gegnum netið.
Nánari upplýsingar um dagskrá og rannsóknarverkefnin er að finna á vef Sjávarútvegsskóla GRÓ, að því er fram kemur á vef Hafrannsóknastofnunar.