Seiði sluppu úr landeldisstöð

Matvælastofnun barst tilkynning miðvikudaginn 6. maí 2026 frá Kaldvík ehf. um strok úr eldisstöð þeirra í Lónum í Kelduhverfi. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar.
„Samkvæmt upplýsingum frá rekstrarleyfishafa varð bilun í búnaði til þess að fiskur komst úr eldiskeri og út í settjörn þar sem seinni vörn gegn stroki er staðsett. Rekstrarleyfishafi virkjaði strax viðbragðsáætlun vegna stroks auk þess að gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir frekara strok. Rekstrarleyfishafi telur hverfandi líkur á að eldislax hafi komist úr settjörn og út í sjó,” segir í fréttinni.
Þar segir að Matvælastofnun hafi ekki borist upplýsingar um fjölda laxa í kerinu en samkvæmt upplýsingum frá rekstrarleyfishafa hafi meðalþyngd þeirra verið 92,6 gr.
„Matvælastofnun vinnur að rannsókn málsins og hefur kallað eftir frekari gögnum frá Kaldvík sem gæti varpað skýrara ljósi á atvikið. Matvælastofnun mun gefa út eftirlitsskýrslu vegna atviksins þegar rannsókn er lokið og birta á mælaborði fiskeldis á heimasíðu Matvælastofnunar.”
Meðfylgjandi mynd er úr safni.
