Valmundur vill skýringar á loðnuverði

Deila:

Valmundur Valmundsson formaður Sjómannasambands Íslands segir mikinn mun á loðnuverði hér á landi og í Færeyjum vekja alvarlegar spurningar um verðmyndun í sjávarútvegi. Þetta kemur fram í grein sem hann hefur birt um loðnuvertíðina 2026 á vef sambandsins.

Í greininni er bent á að upplýsingar sem fram hafi komið á Alþingi sýni að verð á loðnu upp úr sjó í Færeyjum hafi verið allt að þrefalt hærra en hér á landi á síðustu vertíð. Valmundur tekur þó fram að lokauppgjör loðnuverðs til sjómanna liggi ekki enn fyrir.

Hann segir að ef miðað sé við það verð sem rætt hefur verið um í Færeyjum hefði aflaverðmæti íslenska loðnuflotans getað numið um 35 milljörðum króna í stað um 12 milljarða króna miðað við íslenskt verð.

„Það er ekki nóg að segja að markaðurinn ráði. Markaður sem enginn sér inn í er ekki raunverulegur markaður,“ segir Valmundur í greininni.

Þar segir einnig að laun sjómanna ráðist að stórum hluta af aflaverðmæti og því skipti gagnsæ verðmyndun miklu máli. Sjómannasamband Íslands muni hvetja sjómenn til að segja upp verðsamningum á uppsjávarfiski ef uppgjörsverð verði ekki talið ásættanlegt.

„Krafa verkalýðshreyfingarinnar hlýtur að vera skýr: fullt gagnsæi í verðmyndun sjávarafurða og trygging þess að þeir sem sækja auðlindina fái réttmætan hlut af verðmætunum,“ segir Valmundur Valmundsson.

Deila: