Gullver seldur til Gambíu

Ísfisktogarinn Gullver NS hefur verið seldur úr landi og ber nú nafnið Elisabeth H með heimahöfn í Banjul, höfuðborg Gambíu. Nýr eigandi skipsins er norskur og hefur skipið fengið nafn eftir dóttur hans. Þetta kemur fram á heimasíðu Síldarvinnslunnar.
Áður hafði Síldarvinnslan ákveðið að leggja Gullveri NS og Jóhönnu Gísladóttur GK og hefja í þeirra stað útgerð togarans Birtings NK. Í kjölfarið voru bæði skipin auglýst til sölu. Gullver hefur að undanförnu legið í Hafnarfjarðarhöfn þar sem nýtt nafn og heimahöfn voru máluð á skipið.
Gullver var smíðaður í Flekkefjord í Noregi árið 1983 og er 674 brúttótonn að stærð. Í skipinu er 1770 hestafla MAK-vél. Skipið kom nýtt til Seyðisfjarðar 12. júlí 1983 og var þá í eigu Gullbergs hf., félags Ólafs M. Ólafssonar og Jóns Pálssonar skipstjóra. Síldarvinnslan eignaðist Gullberg ehf. árið 2014 og hélt áfram útgerð skipsins frá Seyðisfirði.
Seyðisfjörður var heimahöfn Gullvers í 43 ár og skipið gegndi mikilvægu hlutverki í atvinnulífi staðarins allan þann tíma. Gunnlaugur Hafsteinsson vélstjóri, sem starfaði á skipinu frá árinu 1987 og sem yfirvélstjóri frá árinu 2000, segir minningarnar úr skipinu afar margar og góðar.
„Ég á margar minningar sem tengjast verunni á skipinu og flestar eru þær afar ljúfar og góðar. Mér leið alltaf vel um borð,“ segir Gunnlaugur meðal annars.
Hann rifjar upp eftirminnilegan Smugutúr árið 1994 þar sem áhöfnin lenti í mjög erfiðu veðri með yfir 20 metra vindi og 18 stiga frosti. „Vatn fraus í öllum tönkum og skipið var einn ísklumpur. Við þurftum reglulega að sparka upp hurðum til að tryggja að einhver útgönguleið væri fær,“ segir hann.
Gunnlaugur segir einnig að hann hafi varðveitt myndir, skipsmuni og allar véladagbækur skipsins, alls 105 talsins. „Ég held að allir Seyðfirðingar hugsi hlýtt til þessa skips og vonandi gefst okkur tækifæri til að koma þessum myndum og munum þannig fyrir að allir geti skoðað og rifjað upp Gullversárin,“ segir hann.

