Meðalvigtin mest á Höfn fyrstu vikuna

Meðalafli þorsks var mestur á Hornafirði í fyrstu viku strandveiða. Strandveiðibátar lönduðu þar 42 sinnum í vikunni, samkvæmt skráningum Fiskistofu, en meðalafli þorsks var 668 kíló.
Þorlákshöfn kemst næst á listann, sem verður að teljast óvenjulegt, með 651 kíló. Þar á eftir koma löndunarhafnirnar Skagaströnd (640 kg), Stykkishólmur, (635 kg) Rif (633 kg) og Ólafssvík (631 kg). Hafa verður í huga að ekki er víst að allar landanir hafi skilað sér til Fiskistofu.
Samkvæmt vefnum er búið að veiða 804 tonn.
501 bátur er með skráða löndun, þegar þetta er skrifað, í vikunni.

