Góðri kolmunnavertíð lokið

Deila:

Beitir NK kom til hafnar í Neskaupstað í morgun með 2.720 tonn af kolmunna úr færeyskri lögsögu og þar með er kolmunnaveiðum skipa Síldarvinnslunnar lokið að sinni. Áður höfðu Barði NK landað 2.100 tonnum á þriðjudag og Börkur NK 3.200 tonnum á miðvikudag.

Þorkell Pétursson skipstjóri á Barða segir veiðarnar hafa gengið afar vel síðustu vikur.

„Í reyndinni hefur kolmunnaveiðin verið afar góð og það er svo sannarlega gaman þegar vel veiðist,“ segir Þorkell. Hann segir að aflinn í síðasta túr hafi fengist í sex holum á skiljusvæði í Ræsinu við Færeyjabanka, þar sem togað var í sex til ellefu tíma.

Hjörvar Hjálmarsson skipstjóri á Berki segir túrinn einnig hafa gengið vel en skipið var innan við þrjá sólarhringa að fylla sig.

„Fiskurinn er á norðurleið í ætisleit og vonandi endar hann í Rósagarðinum í íslenskri lögsögu,“ segir Hjörvar. Aflinn fékkst í sjö holum og var á bilinu 360 til 580 tonn í hverju holi.

Ólafur Gunnar Guðnason skipstjóri á Beiti segir hins vegar að dregið hafi úr veiðinni síðustu dagana.

„Þegar fiskurinn gengur norður eftir dreifir hann sér og þá verður veiðin bölvað sarg,“ segir Ólafur Gunnar. Hann segir aflann hafa fengist í tíu holum þar sem togað var í um tuttugu tíma og aflinn verið 200 til 300 tonn í holi.

Þrátt fyrir að veiðin hafi minnkað undir lokin segir hann menn afar ánægða með kolmunnaveiðarnar að undanförnu.

Deila: