Humarinn að rétta úr kútnum

Deila:

Könnunarveiðar á humri hófust nú í byrjun maí í samstarfi Vinnslustöðvarinnar, Skinneyjar – Þinganess og Hafrannsóknastofnunar. Tvö skip stunda veiðarnar, Drangavík VE og Skinney SF, en tilgangurinn er að meta stöðu humarstofnsins eftir að veiðar voru stöðvaðar árið 2022 vegna hruns í nýliðun. Þetta kemur fram í frétt á vef Vinnslustöðvarinnar.

Samkvæmt Hafrannsóknastofnun hefur nýliðun humars farið batnandi frá árinu 2018 og síðustu ár hefur mælst verulegur bati. Humarholur hafa verið taldar með neðansjávarmyndavélum og mælingar sýna aukinn þéttleika humars, sérstaklega við suðausturströndina.

Drangavík VE hóf rannsóknarveiðar 2. maí á svæðinu frá Jökuldýpi að Eldey og austur fyrir Vestmannaeyjar. Þar veiddust níu kör af humri í stuttum rannsóknartogum, sem þótti umfram væntingar.

Síðustu daga hefur skipið verið við könnunarveiðar í Skeiðarárdýpi þar sem aflinn hefur farið langt fram úr bjartsýnustu spám.

„Við höfum verið núna í tæpa 2 sólarhringa vítt og breytt hér í Skeiðarárdýpinu og allstaðar fengið góðan humarafla. Þetta er allt smár humar og greinilega mikil breyting að eiga sér stað. Það eru þegar komin 40 kör og enn að bætast við,“ segir Kjartan Guðmundsson skipstjóri á Drangavík.

Aflinn er unninn hjá Skinney – Þinganesi á Hornafirði. Sverrir Haraldsson hjá Vinnslustöðinni segir niðurstöðurnar mjög ánægjulegar.

„Reyndar erum við að sjá mun meiri afla en við gerðum ráð fyrir. Hafrannsóknastofnun stýrir verkefninu og ákveður hvert framhaldið verður á grundvelli varúðarsjónarmiða. En það er verulega ánægjulegt að sjá þennan bata sem augljóslega er í humarstofninum,“ segir Sverrir.

Deila: