Opinn fundur um Landeyjahöfn

Deila:

Vegagerðin mun halda opinn fund í Vestmannaeyjum 2. júní næstkomandi þar sem fjallað verður um stöðu Landeyjahafnar, reynsluna af nýliðnum vetri og áskoranir við dýpkun hafnarinnar.

Á fundinum verða kynntar frumniðurstöður úr rannsóknarvinnu dönsku sérfræðistofunnar DHI A/S, sem hefur unnið fyrir Vegagerðina frá haustinu 2024 að greiningu á möguleikum til að bæta nýtingu hafnarinnar. Verkefnið byggir meðal annars á sandburðarlíkani sem þróað var út frá 15 ára gagnasafni og hefur verið notað til að meta mögulegar breytingar á höfninni og nærumhverfi hennar.

Forstjóri Vegagerðarinnar og sérfræðingar stofnunarinnar verða með erindi þar sem farið verður yfir hvernig dýpkun hefur gengið undanfarin ár í samanburði við síðasta vetur, auk þess sem hugmyndir um næstu skref verða kynntar.

Að loknum erindum verður opnað fyrir spurningar frá fundargestum.

DHI A/S hefur áður unnið með Vegagerðinni að rannsóknum víða um land, þar á meðal í Landeyjahöfn, og býr yfir víðtækri reynslu á sviði straumfræði og hafnarrannsókna.

Fundartími og staðsetning verða auglýst síðar.

Deila: