Björg kölluð út vegna veiðarfæra í skrúfu

Deila:

Áhöfnin á björgunarskipinu Björgu á Snæfellsnesi var kölluð út á mesta forgangi klukkan 12:16 í dag eftir að fiskiskipið Ólafur Bjarnason frá Ólafsvík fékk veiðarfæri í skrúfuna skammt undan Búlandshöfða.

Sex manns voru um borð í Ólafi Bjarnasyni sem rak hægt að landi og þótti hætta á að skipið strandaði. Þegar útkallið barst var skipið rétt rúma eina og hálfa sjómílu frá landi.

Björgunarskipið Björg fór úr höfn á Rifi klukkan 12:23, aðeins sjö mínútum eftir útkall, og hélt á fullri ferð austur í átt að Búlandshöfða.

Um tuttugu mínútum síðar var Björg komin að Ólafi sem þá var um 0,7 sjómílur frá landi. Taug var komið á milli skipanna og tók Björg létt í Ólaf meðan áhöfn hans dró inn nótina til að halda skipinu frá því að reka nær landi.

Þegar nótin var komin um borð var haldið til Ólafsvíkur þar sem skipin komu rétt fyrir klukkan 15 í dag.

Björg var síðan komin aftur í heimahöfn á Rifi um fimmtán mínútum síðar og var þá gerð klár fyrir næsta útkall.

Björgunarskipið Björg

Deila: