Fundur um málefni ferskvatnsfiska

Hafrannsóknastofnun boðar til fundar um málefni ferskvatnsfiska fimmtudaginn 21. maí 2026, í aðdraganda komandi veiðisumars. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum 5, í Hafnarfirði.
Fundarstjóri: Hrönn Egilsdóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs Hafrannsóknastofnunar
Þátttakendur eru beðnir um að skrá sig hér. Skráningu lýkur miðvikudaginn 20. maí, kl. 12.00.
Dagskrá:
8.20-9.00: Morgunverður
9:00-9:05: Fundur settur
9:05-9:30 Ármöl – sjálfbær auðlind eða lykilbúsvæði laxfiska?
Sveinn Kári Valdimarsson, sérfræðingur á Hafrannsóknastofnun.
9.30-9.55: Endurheimt búsvæða
Jóhannes Guðbrandsson, sérfræðingur á Hafrannsóknastofnun
9.55-10.20: Greining álagsþátta fyrir Atlantshafslax
Hlynur Bárðarson, sérfræðingur á Hafrannsóknastofnun
10.20-10.45: Villtir laxfiskar og fiskeldi
Guðni Guðbergsson, sviðsstjóri ferskvatns- og eldissviðs Hafrannsóknastofnunar

