Góð veiði að loknu stoppi
Hörkuveiði hefur verið hjá krókaaflamarksbátnum Fjölni GK frá því hrygningastoppi lauk 21. apríl síðastliðinn. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar þar sem rætt var við þá Júlíus Magnús Sigurðsson og Kristinn Arnberg Kristinsson skipstjóra bátsins, sem Vísir í Grindavík gerir út.
Að sögn skipstjóranna setti tíðarfarið mark sitt á byrjun aprílmánaðar og þá var lítið róið vegna samfelldra bræla. Tíminn var hins vegar nýttur til að skipta um skrúfu á bátnum.
Frá því hrygningastoppinu lauk hefur veiðin verið afar góð. Fjölnir hefur róið frá Grindavík og verið með veiðar skammt undan landi, aðeins um tíu mínútna siglingu frá bryggju. Aflinn hefur að langmestu leyti verið þorskur.
Þeir segja að frá 21. apríl til 10. maí hafi aflinn að jafnaði verið um 400 kíló á bjóð og heildaraflinn á tímabilinu numið um 220 tonnum.
Fjölnismenn hyggjast halda áfram róðrum frá Grindavík næstu daga en stefna síðan á að færa sig austur á land eða til Neskaupstaðar. Þar vonast þeir til að taka á móti áframhaldandi góðri veiði.

