23 útskrifast úr GRÓ

Útskrift Sjávarútvegsskóla GRÓ fer fram miðvikudaginn 20. maí í húsnæði Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði. Við athöfnina útskrifast 23 sérfræðingar frá 15 löndum eftir sex mánaða þjálfunarnám við skólann.
Athöfnin hefst klukkan 15 og er opin öllum áhugasömum. Samhliða verður veggspjaldasýning í anddyri stofnunarinnar þar sem nemendur kynna rannsóknarverkefni sín.
Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra flytur ávarp við útskriftina ásamt Nínu Björk Jónsdóttur forstöðumanni GRÓ Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu. Þá stýrir Þór Heiðar Ásgeirsson forstöðumaður Sjávarútvegsskóla GRÓ afhendingu skírteina til nemenda.
Í árganginum eru þátttakendur frá löndum í Mið-Ameríku, Karíbahafi, Afríku, Asíu og Kyrrahafi. Flestir nemendur voru á Fiskveiðilínu skólans, alls átta talsins. Sex voru á Stofnstærðarlínu, fimm á Fiskeldislínu og fjórir á Matvæla- og gæðastjórnunarlínu.
Með útskrift þessa árgangs hafa alls 535 manns lokið sex mánaða þjálfunarnámi Sjávarútvegsskóla GRÓ frá stofnun hans árið 1998.
Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknastofnunar.



