Aflvana fiskibátar á Breiðafirði og Húnaflóa

Tvö björgunarskip og eitt hjálparskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kölluð út í nótt og morgun vegna aflvana fiskibáta á Breiðafirði og Húnaflóa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu.
Rétt fyrir klukkan átta á sunnudagskvöld barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar beiðni um aðstoð frá fiskibáti sem var staddur á miðjum Breiðafirði eftir að vélarbilun varð um borð. Tveir voru í áhöfn bátsins sem var á leið til Hafnarfjarðar í viðgerð.
Áhöfn björgunarskipsins Bjargar á Rifi var kölluð út og hélt skipið þegar til aðstoðar. Um tuttugu mínútur í níu var Björg komin að bátnum og tókst að koma dráttartaug á milli skipanna. Í framhaldinu var stefnan tekin suður fyrir Snæfellsnes.
Á sama tíma hafði áhöfn björgunarskipsins Kristrúnar frá Bjargi á Akranesi verið kölluð út til að taka við drætti fyrir sunnan Malarrif og draga bátinn síðasta spölinn til Hafnarfjarðar. Skipin mættust um klukkan þrjú í nótt og tók Kristrún þá við drættinum. Björg hélt aftur til heimahafnar og kom til Rifs um fjögurleytið í nótt. Kristrún var síðan að koma með bátinn inn í Hafnarfjarðarhöfn um níuleytið í morgun.
Þá var áhöfn björgunarskipsins Húnabjargar á Skagaströnd kölluð út um hálfsjö í morgun vegna fiskibáts sem lenti í vandræðum á Húnaflóa. Vél bátsins hafði ofhitnað og um tíma var óttast að eldur gæti kviknað um borð. Skipverja tókst þó að drepa á vélinni með því að loka fyrir eldsneytisrennsli að henni.
Húnabjörgin kom síðan með bátinn til hafnar á Skagaströnd rétt fyrir klukkan átta í morgun.



