
Góð veiði hefur verið hjá Vestmannaeyjatogurunum Vestmannaey VE og Bergey VE það sem af er maímánuði og hafa skipin yfirleitt komið með fullfermi að landi eftir stuttar veiðiferðir. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.
Bæði skipin lönduðu fullfermi í gær, Vestmannaey í Grindavík og Bergey í Vestmannaeyjum. Veiðiferðirnar hafa að jafnaði verið tveir til þrír sólarhringar þó síðasti túr hafi tekið um þrjá og hálfan sólarhring vegna slæms veðurs.
„Það hefur gengið vel að veiða að undanförnu. Túrarnir hafa verið stuttir en þessi túr var þó þrír og hálfur sólarhringur, enda veðrið ekki sérstaklega skemmtilegt. Það voru 20–25 metrar í eina tvo sólarhringa og töluverð leiðindi,“ segir Egill Guðni Guðnason skipstjóri á Vestmannaey VE.
Hann segir að skipið hafi hafið veiðar í Háfadýpi, síðan farið á Broadway og þaðan í Grjótið vestan við Garðskaga áður en túrinn var kláraður við Eldeyna.
„Nú er einnig farið að líða á kvótaárið og þá er ekki unnt að veiða hvaða tegund sem er,“ segir Egill Guðni.
Ragnar Waage Pálmason skipstjóri á Bergey VE segir aflabrögðin einnig hafa verið góð hjá þeirra skipi í maí.
„Það hefur gengið vel að fiska allan þennan mánuð. Veiðiferðirnar hafa verið stuttar og við höfum landað í Grindavík þar til nú að landað er í heimahöfn,“ segir Ragnar Waage.
Að hans sögn var veðrið leiðinlegt í síðasta túr og tók hann því um þrjá og hálfan sólarhring. Aflinn hafi að mestu verið langa auk blandaðs afla af öðrum tegundum.
„Við hófum veiðar á Pétursey í kaldafýlu. Þaðan var haldið á Ingólfshöfða þar sem var nudd. Síðan var tekið eitt hol í Reynisdýpinu og loks klárað á Vík og Pétursey. Það er verið að eltast við ákveðnar tegundir eins og ávallt þarf að gera í lok kvótaárs,“ segir Ragnar Waage.

