
Óvissa um strandveiðar og línuívilnun er óásættanleg að mati stjórnar Landssambands smábátaeigenda. Þetta kemur fram í ályktun stjórnar LS vegna stjórnsýslukæru sem nú er til meðferðar hjá Umboðsmanni Alþingis.
Í ályktuninni lýsir stjórn LS yfir miklum áhyggjum af því að enn hafi ekki verið tryggt með lagabreytingum að strandveiðar geti staðið í 48 daga og að nægjanlegt aflamagn verði tryggt svo ekki komi til stöðvunar veiða.
Þar kemur fram að svör atvinnuvega- og innviðaráðherra um aukningu afla bendi til þess að framkvæmd sem beitt hafi verið undanfarin ár kunni ekki að standast lög. Þá segir að Ísfélagið í Vestmannaeyjum, eitt aðildarfélaga Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, hafi leitað til Umboðsmanns Alþingis vegna málsins. Í kjölfarið hafi Umboðsmaður sent atvinnuvegaráðuneytinu ítarlegar fyrirspurnir.
LS hefur óskað eftir afritum af þeim gögnum og bréfum sem farið hafa milli ráðuneytisins og Umboðsmanns Alþingis, auk samskipta ráðuneytisins við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og aðildarfélög þeirra vegna málsins.
Stjórn LS segir óásættanlegt að ráðist hafi verið í breytt vinnubrögð sem leiði til skerðingar á aflamagni til strandveiða og línuívilnunar án þess að niðurstaða liggi fyrir um að fyrri framkvæmd hafi verið andstæð lögum. Að mati stjórnarinnar skapi slík málsmeðferð óvissu, grafi undan trausti og bitni alvarlega á hagsmunum smábátaeigenda um land allt.
Í lok ályktunarinnar krefst stjórn LS þess að stjórnvöld tryggi strandveiðum þegar í stað þann lagalega og efnislega grundvöll sem nauðsynlegur sé til að standa við fyrirheit um 48 daga strandveiðitímabil og tryggja nægjanlegt aflamagn til veiðanna.
