Þórunn á leið í leiðangur

Rannsóknaskipið Þórunn Þórðardóttir lagði af stað í dag, 20. maí, í árlegan vorleiðangur Hafrannsóknastofnunar og er áætlað að leiðangrinum ljúki 3. júní næstkomandi.
Leiðangurinn er liður í langtímavöktun Hafrannsóknastofnunar á hita og seltu sjávar, næringarefnum, plöntusvifi og dýrasvifi á hafsvæðinu í kringum Ísland. Slíkar árferðisrannsóknir hafa verið framkvæmdar nær samfellt frá því um 1950.
Í leiðangrinum verður umhverfisástand sjávar kannað á föstum mælistöðum út frá landinu. Jafnframt verða framkvæmdar mælingar með síritandi mælitækjum á siglingaleið skipsins, líkt og gert er í tveimur til þremur öðrum árstíðabundnum leiðöngrum stofnunarinnar ár hvert.
Magn plöntusvifs verður mælt með blaðgrænumælingum og líffræðileg fjölbreytni þess rannsökuð með smásjárrannsóknum og erfðafræði. Þá verður magn, útbreiðsla og tegundasamsetning dýrasvifs könnuð með háfasýnum sem gefa góða mynd af smærri átu, auk þess sem bergmálstækni verður notuð til að afla upplýsinga um stærri átu á hafsvæðinu.
Í leiðangrinum verða einnig heimsóttir firðir á Vestur- og Austurlandi þar sem meta á umhverfisáhrif sjókvíaeldis og afla gagna sem nýtast við mat á burðarþoli fjarða.
Sýnum verður jafnframt safnað fyrir vatnarannsóknir í verkefninu LIFE-Icewater þar sem markmiðið er að afla upplýsinga sem hægt er að nýta við ástandsmat vatnshlota. Þá verður umhverfiserfðafræðisýnum safnað fyrir samstarfsverkefnið NordiCoast í samstarfi við rannsóknastofnanir í Færeyjum og Skotlandi, en verkefnið snýr að því að byggja upp grunnþekkingu á líffræðilegri fjölbreytni strandsvæða í Norður-Atlantshafi.
Að venju verða einnig tekin sýni fyrir Geislavarnir ríkisins vegna vöktunar á magni geislavirkra efna í sjó og rekdufl frá NOAA þjónustuð. Þá verður hægt að fylgjast með leiðangrinum á vef Hafrannsóknastofnunar og fyrstu niðurstöður birtast þar fljótlega eftir að honum lýkur.

