Aðeins fimm markaðir mega endurvigta

Fiskistofa hefur birt ábendingar til útgerða og vigtarleyfishafa í kjölfar útgáfu reglugerða um 13., 14. og 15. breytingu á reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla.
Þar kemur meðal annars fram að vigtun strandveiðiafla eigi að ljúka á hafnarvog. Þá er heimilt að draga allt að þrjú prósent frá vegna íss ef aflinn er ísaður.
Jafnframt segir að Fiskistofa geti veitt vigtarleyfishöfum leyfi til að endurvigta ísaðan afla strandveiðibáta, að því gefnu að tilskilinn búnaður sé notaður við vigtunina.
Tekið er fram að strandveiðiafla megi einungis senda til endurvigtunar til aðila sem hafi sérstakt leyfi til slíkrar starfsemi.
Eftirtaldir aðilar hafa samkvæmt Fiskistofu leyfi til endurvigtunar á strandveiðiafla:
• Fiskmarkaður Íslands hf. á Rifi
• Fiskmarkaður Snæfellsbæjar ehf. í Ólafsvík
• Fiskmarkaður Snæfellsbæjar ehf. á Sauðárkróki
• FMS hf. í Bolungarvík
• FMS hf. á Patreksfirði
