Þeir stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum

Deila:

Ný skýrsla Hagfræðistofnunar sýnir að tuttugu kvótahæstu útgerðir landsins eigi samanlagt yfir 400 milljarða króna í öðrum félögum og atvinnurekstri. Meginniðurstaðan er að fjárfestingar og umsvif stærstu útgerðarfyrirtækjanna hafi aukist verulega á síðasta áratug. Þetta kemur fram í frétt á vef RÚV.

Samkvæmt samantektinni eru um 230 milljarðar króna bundnir í öðrum útgerðarfélögum, tæplega 130 milljarðar í öðrum íslenskum fyrirtækjum og um 50 milljarðar í erlendum eignum. Fjögur fyrirtæki, Síldarvinnslan, Fisk Seafood, Útgerðarfélag Reykjavíkur og Brim, standa undir um tveimur þriðju hlutum eignanna.

Í frétt RÚV er bent á að Hagfræðistofnun styðjist við skilgreiningu laga um stjórn fiskveiða þegar metið er hverjir teljist tengdir aðilar. Samkvæmt þeirri túlkun þurfi eignarhlutur að fara yfir 50 prósent til að félög teljist tengd. Vegna þess komi ýmsar stórar eignir ekki fram í samantektinni.

Þar eru meðal annars nefnd tengsl Samherja við Eimskipafélagið, þar sem hlutur tengdra aðila var metinn á 26 milljarða króna í árslok 2024, auk eignatengsla Ísfélagsins í Vestmannaeyjum við félagið Kristinn ehf. Í fréttinni segir að fjarvera slíkra eigna geti haft áhrif á umræðu um samþjöppun auðs og áhrifa í íslensku atvinnulífi.

Deila: