Verkfalli hafnarverkafólks aflýst

Deila:

Samtök atvinnulífsins fyrir hönd Eimskips og Sjómannafélags Íslands hafa gert með sér samkomulag vegna hafnarverkafólks í Sundahöfn. Með samkomulaginu hefur boðuðu verkfalli, sem hefjast átti 26. maí næstkomandi, verið aflýst. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskipi til Kauphallar Íslands.

Samkvæmt samkomulaginu verður viðræðum um nýjan kjarasamning frestað til 31. október 2026 á meðan unnið verður að hæfnigreiningu hafnarstarfa. Á því tímabili gildir friðarskylda milli aðila.

Jafnframt verður hafin innleiðing á formlegu hæfnilaunakerfi fyrir hafnarverkafólk. Kerfið á að byggja á greiningu starfa þar sem hæfni, færni og ábyrgð starfsfólks verður lögð til grundvallar við launasetningu og launaþróun. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins mun annast röðun starfa í hæfniþrep samkvæmt íslenska hæfnirammanum.

Gert er ráð fyrir að innröðun í nýja kerfið verði lokið fyrir 25. október næstkomandi.

Fram kemur í tilkynningu Eimskips að viðræður vegna bátsmanna og háseta á eigin skipum félagsins hafi hins vegar ekki enn skilað árangri.

Deila: