Björgunarskip kallað út í Faxaflóa

Björgunarskipið Jóhannes Briem var kallað út rétt fyrir klukkan ellefu í morgun eftir að aðstoðarbeiðni barst frá litlum fiskibáti við Syðrahraun í Faxaflóa.
Að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörg varð báturinn fyrir vélarbilun sem hindraði frekari siglingu. Þá hafði rafmagn farið af bátnum.
Áhöfn Jóhannesar Briem í Reykjavík var boðuð út og hélt skipið úr höfn skömmu eftir klukkan ellefu. Rétt fyrir hádegi hafði björgunarskipið náð að fiskibátnum og hófst þá undirbúningur fyrir drátt til hafnar í Hafnarfirði.
Engin yfirvofandi hætta var talin á ferðum fyrir bátinn eða skipverja hans.
Gert var ráð fyrir að skipin kæmu til hafnar á milli klukkan 13 og 14.



