Synjun HMS felld úr gildi

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi ákvörðun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar frá 27. mars síðastliðnum um að synja eigendum sjávarjarðanna Austdals, Brimness, Dvergasteins og Selstaða í Seyðisfirði um aðild að stjórnsýslumáli vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir mannvirkjum til sjókvíaeldis í Seyðisfirði. Þetta kemur fram í úrskurði nefndarinnar frá 21. maí.
Málið snýr að áformum Kaldvíkur hf. um sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Eigendur jarðanna og félagasamtökin VÁ! kærðu ákvörðun HMS um að synja þeim um aðild að málinu og aðgang að gögnum þess.
Í kæru sinni héldu landeigendur því meðal annars fram að fyrirhuguð mannvirki og áhrifasvæði veiðibanns vegna fiskeldisins hefðu áhrif á eignarrétt þeirra og nýtingu jarðanna. Þeir bentu einnig á möguleg umhverfisáhrif, sjónmengun og áhrif á ferðaþjónustu á svæðinu.
HMS taldi hins vegar að fyrirhuguð mannvirki og festingar þeirra væru utan netlaga sjávarjarðanna og að veiðibann vegna fiskeldisins skerti ekki lögvarinn fiskveiðirétt landeigendanna. Af þeim sökum hefðu þeir ekki aðild að stjórnsýslumálinu.
Úrskurðarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að kærendur hefðu fært fram ítarlegri rök fyrir aðildarhagsmunum sínum, meðal annars vegna grenndaráhrifa, umhverfisáhrifa og staðbundinna aðstæðna. Taldi nefndin því að HMS hefði þurft að leggja heildstæðara mat á hagsmuni landeigendanna áður en ákvörðun var tekin.
Var ákvörðun HMS því felld úr gildi og stofnuninni bent á að taka málið til nýrrar meðferðar að undangenginni frekari rannsókn og rökstuðningi kærenda.
Kæru félagasamtakanna VÁ! var hins vegar vísað frá þar sem úrskurðarnefndin taldi að lögákveðin kæruaðild slíkra samtaka veitti þeim ekki sjálfkrafa aðild að málum á fyrsta stjórnsýslustigi.
