Um 90 manns sóttu fræðslufund Hafró

Deila:

Hafrannsóknastofnun hélt opinn fræðslufund um málefni ferskvatnsfiska 21. maí undir yfirskriftinni Upptaktur að veiðisumri. Fundurinn fór fram í húsakynnum stofnunarinnar í Fornubúðum í Hafnarfirði og var vel sóttur en um 90 manns mættu til að fræðast um komandi veiðisumar.

Fjórir sérfræðingar stofnunarinnar fluttu erindi á fundinum. Sveinn Kári Valdimarsson fjallaði um hlutverk malar í ám sem búsvæði fyrir laxfiska og mikilvægi þess að raska ekki þeim búsvæðum. Jóhannes Guðbrandsson ræddi um endurheimt og verndun búsvæða vatnafiska og Hlynur Bárðarson fjallaði um greiningu álagsþátta fyrir Atlantshafslax. Bæði þau verkefni eru hluti af vinnu NASCO, alþjóðasamtaka um verndun Atlantshafslax, sem Ísland á aðild að.

Að lokum fjallaði Guðni Guðbergsson um villta laxinn og fiskeldi og þau verkefni og áskoranir sem tengjast þeim málaflokki. Fundarstjóri var Hrönn Egilsdóttir.

Að því er fram kemur á vef Hafrannsóknastofnunar mæltist viðburðurinn vel fyrir og er hann mikilvægur liður í að efla tengsl og samtal milli stofnunarinnar, veiðiréttareigenda, veiðimanna og annars áhugafólks um ferskvatnsfiska.m 90 manns sóttu fræðslufund Hafró

Deila: