Fullfermi hjá Vestmannaey og Bergey

Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu fullfermi í Neskaupstað í byrjun vikunnar. Vestmannaey landaði í fyrradag og hélt aftur til veiða að löndun lokinni. Bergey kom til hafnar í kjölfarið og hófst löndun úr skipinu í gærmorgun. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.
Birgir Þór Sverrisson skipstjóri á Vestmannaey segir að túrinn hafi að mestu einkennst af reitingsveiði. „Aflinn var mest ýsa og dálítill þorskur með. Við byrjuðum á að taka eitt hol á Víkinni, síðan var keyrt á Höfðann og tekin tvö hol þar. Þaðan var haldið í lónsbugtina og endað var á Undirbyrðishrygg eða nyrst á Papagrunni,“ segir Birgir Þór.
Hann segir að skipið hafi gjarnan verið við veiðar úti fyrir Suðausturlandi að lokinni vetrarvertíð. „Við höfum gjarnan veitt úti fyrir suðausturlandi að lokinni vetrarvertíð en af og til þó veitt fyrir vestan eins og þegar þurft hefur að sækja karfa. Fiskurinn sem við erum með núna er þokkalegur miðað við árstíma. Við reiknum með að vera tvo næstu túrana úti fyrir suðausturlandinu og eltast þar við ýsu. Reyndar höfum við alloft haldið okkur á þessum suðausturmiðum einnig í júnímánuði,“ segir hann.
Jón Valgeirsson skipstjóri á Bergey segir að vel hafi gengið að fiska eftir að austur var komið, þótt upphaf túrsins hafi ekki gengið sem skyldi. „Aflinn í túrnum var að mestu ýsa og það veiddist vel af henni undir lok túrsins. Við byrjuðum á Víkinni og fengum aðeins þorsk þar. Síðan var reynt við ufsa í Reynisdýpi, Kötlugrunni, Síðugrunni og Skeiðarárdýpi með heldur dapurlegum árangri. Loks var keyrt austur á Undirbyrðishrygg og þar var hörkuýsuveiði,“ segir Jón.
Að hans sögn tók túrinn þrjá sólarhringa frá höfn til hafnar. „Þessi túr tók þrjá sólarhringa höfn í höfn og gekk vel þó svo að tími færi í að leita að ufsanum. Við munum halda til veiða á ný fljótlega eftir löndun og ekki er ósennilegt að við förum á svipaðar slóðir og við enduðum á í síðasta túr. Við munum taka tvo til þrjá túra fyrir sjómannadag og ekki er ósennilegt að við höldum okkur á miðunum úti fyrir landinu suðaustanverðu,“ segir Jón.


