Nota sjö prósent meiri orku til Íslands

Ný greining norska ráðgjafarfyrirtækisins DNV bendir til þess að flutningaskip í reglubundnum siglingum til Íslands þurfi að jafnaði um sjö prósent meiri orku til að knýja skip sín en sambærileg skip í Evrópu og á alþjóðlegum siglingaleiðum. Greiningin var unnin að beiðni innviðaráðuneytis og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis og byggir á siglingagögnum frá árinu 2025.
Í greiningunni voru skoðuð 19 flutningaskip sem sigldu til Íslands á árinu 2025 og niðurstöðurnar bornar saman við hundruð skipa í Evrópu og á alþjóðlegum leiðum. Markmiðið var meðal annars að meta hvort veður og ölduhæð á Norður-Atlantshafi hefðu áhrif á orkunotkun skipa til Íslands umfram það sem tíðkast annars staðar.
Samkvæmt niðurstöðunum þurfa skip sem sigla til Íslands að verja að meðaltali 17,2% viðbótarorku í að yfirvinna áhrif vinds og öldu, samanborið við 9,4% hjá skipum sem að mestu sigla innan Evrópu og 9,9% hjá skipum á alþjóðlegum leiðum. Munurinn nemur því 7,8% miðað við Evrópu og 7,3% miðað við heimsmeðaltal.
Í skýrslunni kemur fram að erfiðustu aðstæðurnar séu jafnan á síðasta legg siglingarinnar áður en komið er til Íslands. Þar mælist ölduhæð einnig mun meiri en á öðrum siglingaleiðum. DNV bendir á að skip á leið til Íslands séu oft í ölduhæð yfir 3,4 metrum um tíu prósent tímans, á meðan sambærileg skip í Evrópu og á heimsvísu mæti að jafnaði 2,1 metra ölduhæð við sömu aðstæður.
Þá segir að aukin orkunotkun geti haft áhrif á kostnað vegna kolefnislosunar samkvæmt alþjóðlegu regluverki um skipaflutninga, meðal annars FuelEU Maritime og ETS-kerfi Evrópusambandsins. Einnig sé líklegt að fyrirhugað regluverk Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar um kolefnishlutleysi muni hafa meiri áhrif á skip sem sigla til Íslands vegna veðuraðstæðna á Norður-Atlantshafi.
Niðurstöður greiningarinnar eru nú til frekari skoðunar hjá ráðuneytunum.
