Settur forstjóri sótti um starfið

Deila:

Alls bárust átta umsóknir til atvinnuvegaráðuneytis um embætti forstjóra Hafannsóknastofnunar. Þeirra á meðal er settur forstjóri, Eggert Benedikt Guðmundsson.

Embættið var auglýst 5. maí sl. og rann umsóknarfrestur út 22. maí.

„Atvinnuvegaráðherra skipar forstjóra Hafrannsóknastofnunar til fimm ára í senn að undangengnu mati hæfnisnefndar. Hæfnisnefnd starfar í samræmi við lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og hefur til hliðsjónar reglur um ráðgefandi nefndir sem meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands,” segir á vef Hafró.

Listi umsækjenda er í stafrófsröð:

  • Arnljótur Bjarki Bergsson, sjávarútvegsfræðingur
  • Eggert Benedikt Guðmundsson, settur forstjóri
  • Guðmundur Jóhann Óskarsson, sviðsstjóri
  • Guðmundur Þórðarson, samningamaður
  • Hrönn Egilsdóttur, sviðsstjóri
  • Kristín Harðardóttir, fiskifræðingur
  • Logi Einarsson, verkfræðingur
  • Óliver Snær Stefánsson, nemi
Deila: