Þokkalegur afli hjá línuskipunum í Grindavík

Deila:

Línuskip Vísis hafa bæði nýverið landað þokkalegum afla í heimahöfn í Grindavík. Sighvatur GK landaði um 80 tonnum í gær og Páll Jónsson GK um 70 tonnum í morgun. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.

Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson skipstjóri á Sighvati sagði að sumarveiðarnar væru hafnar og því væri aflinn ekki jafn mikill og yfir vertíðina.

„Nú er hafin sumarveiði og þá er ekki jafn mikill afli og yfir vertíðartímann en þetta var engu að síður þokkalegasti túr. Aflinn fékkst í fimm og hálfri lögn. Við byrjuðum á Belgableyðunni, síðan var haldið á Kóralhornið og endað við Melsekk. Uppistaða aflans var keila og langa og síðan var dálítill karfi með. Þetta var virkilega fínn fiskur. Það var fínasta veður allan túrinn og ekki yfir neinu að kvarta,“ segir Aðalsteinn Rúnar.

Sighvatur hélt á ný til veiða í gærkvöldi.

Benedikt Jónsson skipstjóri á Páli Jónssyni sagði aflabrögðin ásættanleg miðað við árstíma og kvótastöðuna.

„Það er engin veisla í veiðum á þessum árstíma og svo er kvótinn farinn að dragast saman hjá okkur en við fengum hins vegar flottan fisk í túrnum. Aflinn var mest keila og langa. Ég held að meðalvigtin á löngunni hafi verið um 10 kg og meðalvigt á keilunni um 3 kg. Það er mjög gott. Við vorum einnig með svolítið af ýsu og dálítið af þorski,“ segir Benedikt.

Hann segir skipið hafa byrjað veiðar í svonefndu Ingólfshöfðahólfi sem nýlega var opnað eftir að hafa verið lokað í rúm 20 ár.

„Það er fyrirhafnarmikið að veiða í hólfinu. Þar er lagt í stubbum undan straumi og botninn er mjög erfiður. Lagnirnar í túrnum voru fjórar og hálf. Tvær og hálf voru teknar í hólfinu og síðan tvær á Kötlugrunni. Á Kötlugrunni fékkst góður afli en það var þó heldur mikið af löngu í aflanum. Annars erum við á Páli Jónssyni hinir hressustu,“ segir Benedikt.

Páll Jónsson heldur á ný til veiða í kvöld.

Deila: