3.700 tonn veiddust á strandveiðum í maí

Deila:

Strandveiðum í maí lauk fimmtudaginn 28. maí. Alls voru 14 dagar í boði til veiða í mánuðinum og því tækifæri fyrir sjómenn að ná fullum 12 róðrum þrátt fyrir erfið veðurskilyrði víða um land. Þetta kemur fram á vef LS.

Alls náðu 81 strandveiðibátur 12 róðrum í maí og 92 bátar voru með 11 landanir. Meðalfjöldi róðra hjá þeim 724 bátum sem hafa hafið strandveiðar á þessu ári var 8,1 dagur.

Í maí bárust rúm 3.700 tonn af þorski að landi og var meðalafli rúm fimm tonn á bát. Það er um 100 tonnum minna en á sama tíma í fyrra. Hins vegar vantaði um 750 tonn upp á að afli næði því magni sem veiddist fyrstu 14 daga maímánaðar árið 2024.

Tölur sem birtar eru með fréttinni sýna að fyrstu 14 daga veiðanna veiddust 100 tonnum meira í ár en á sama tíma í fyrra.

Afli á dag hefur dregist saman um 4,8 prósent á svæði A, en aukist á öllum öðrum veiðisvæðum. Mest er aukningin á svæði C þar sem afli á dag hefur vaxið um rúm 10 prósent.

Deila: