Brim kaupir Lýsi fyrir 20 milljarða króna

Stjórn Brims hf. hefur samþykkt kaup á öllum hlutabréfum í Lýsi hf. fyrir 20 milljarða króna. Kaupverðið er lægra en það sem lagt var upp með þegar kauptilboð Brims var kynnt í september á síðasta ári.
Þetta kemur fram í frétt á vef Vísis sem byggir á tilkynningu frá Brimi.
Þegar tilboðið var fyrst kynnt nam kaupverðið 30 milljörðum króna. Frá þeirri fjárhæð áttu að dragast 5,3 milljarðar króna vegna vaxtaberandi skulda Lýsis og var hlutafjárvirði félagsins þá metið á 24,7 milljarða króna.
Í nýrri tilkynningu segir að samið hafi verið að nýju um verð og greiðslukjör viðskiptanna með hliðsjón af meðal annars vaxtaberandi skuldum félagsins. Kaupverðið verði greitt til helminga með reiðufé og til helminga með hlutabréfum í Brimi. Miðað er við gengið 85 krónur á hlut og verður greiðslan innt af hendi þegar viðskiptin hafa hlotið samþykki opinberra aðila.
Við kaupin munu seljendur Lýsis eignast um sex prósenta hlut í Brimi.
Samhliða kaupunum hefur Brim tilkynnt um sölu á eignarhlutum sínum í tveimur félögum. Félagið hefur selt 43 prósenta hlut sinn í útgerðarfélaginu Melnesi á Rifi til KG Fiskverkunar fyrir 1,8 milljarða króna.
Einnig hefur Brim selt 50 prósenta hlut sinn í danska félaginu Polar Seafood Danmark. Kaupandi er grænlenska félagið Polar Seafood Greenland og nemur söluverðið um 925 milljónum danskra króna, jafnvirði um 17,7 milljarða íslenskra króna.
Viðskiptin eru að sögn háð samþykki viðeigandi stjórnvalda.
