Verkfalli Eimskips og farmanna aflýst

Verkfalli háseta og bátsmanna á þremur flutningaskipum Eimskips hefur verið aflýst. Samkomulag hefur náðst í deilunni.
Eimskip greinir frá þessu í tilkynningu.
Verkfallið náði til þriggja skipa Eimskips, Brúarfoss, Dettifoss og Selfoss.