Lönduðu báðir um 60 tonnum á Djúpavogi

Ísfisktogarar Bergs-Hugins í Vestmannaeyjum, Vestmannaey VE og Bergey VE, lönduðu báðir á Djúpavogi í gærmorgun að lokinni stuttri veiðiferð. Afli hvors skips var um 60 tonn.
Að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar var afli Vestmannaeyjar blandaður; ýsa, þorskur, skarkoli og steinbítur. Egill Guðni Guðnason skipstjóri sagði túrinn hafa tekið rúmlega þrjá sólarhringa og veðrið verið leiðinlegt allan tímann, sérstaklega framan af. Veitt var við Hvalbak, í Berufjarðarál, í Lónsbugt og aftur í Berufjarðarál.
Bergey fékk mest þorsk og ýsu. Jón Valgeirsson skipstjóri sagði veðrið einnig hafa verið erfitt í upphafi veiðiferðar en það hefði síðan skánað nokkuð. Bergey hóf veiðar í Berufjarðarál en hélt sig síðan við Hvalbak.
Togararnir héldu aftur til veiða strax að löndun lokinni. Um er að ræða síðasta túr fyrir sjómannadag og er gert ráð fyrir að þeir landi í heimahöfn í Vestmannaeyjum á fimmtudagsmorgun.

