Aflaverðmætið 681 milljón á 37 dögum

Deila:

Frystitogarinn Blængur NK kom til heimahafnar í Neskaupstað í gær að lokinni afar vel heppnaðri veiðiferð að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar. Aflinn var rúm 700 tonn upp úr sjó og verðmæti hans 681 milljón króna.

Fram kemur að veiðiferiðn hafi tekið 37 daga. Bjarni Ólafur Hjálmarsson hafi verið skipstjórinn fyrri hluta veiðiferðarinnar en Sigurður Hörður Kristjánsson síðari hlutann. Þessi túr Blængs mun vera hans stærsti á Íslandsmiðum .

„Bjarni Ólafur sagði að í fyrri hluta túrsins hefði mest verið veitt af grálúðu og ýsu og hefði veiðin þá farið fram í Kartöflugarðinum og á Látragrunni fyrir vestan. Sigurður Hörður upplýsti að í síðari hluta túrsins hefði verið veitt á Hampiðjutorginu og undir lokin á Breiðdalsgrunni og þar um kring. Að veiðum loknum var komið að landi með tæplega 24.000 kassa af gæðafiski,” að því er segir í fréttinni.

Að sögn skipstjóranna var veðrið hið þokkalegasta í túrnum og greinilegt að vorið hafði tekið völdin.

Blængur mun halda til veiða á ný á mánudag að lokinni sjómannadagshelgi.

Deila: