Tveimur útköllum sinnt með skömmu millibili

Áhöfn björgunarskipsins Bjargar á Rifi hafði í nógu að snúast í dag þegar tvö útköll bárust með stuttu millibili.
Fyrr í dag var áhöfnin kölluð út á hæsta forgangi vegna elds um borð í fiskibát.Sigmaður og læknir sigu um borð í bátinn en skipverjinn varð fyrir óhappi þegar eldurinn kom upp.
Skipverjinn fór svo um borð í björgunarskipið og fiskibáturinn var tekinn í tog til hafnar á Rifi. Gert var ráð fyrir að þangað yrði komið laust fyrir klukkan fjögur.
Rétt um hálftíma eftir að því verkefni lauk barst annað útkall. Þá var bátur vestur af Öndverðarnesi orðinn aflvana og óskað var eftir aðstoð.
Engin hætta var á ferðum enda veður gott á svæðinu. Þó þurfti að draga bátinn til hafnar og sinnti áhöfn Bjargar því verkefni.

