Góð keiluveiði hjá línuskipunum

Deila:

Línuskip Vísis, Sighvatur GK og Páll Jónsson GK, hafa nú bæði lokið síðustu veiðiferð sinni fyrir sjómannadag og landað afla í Grindavík. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.

Sighvatur GK landaði um 63 tonnum í heimahöfn í gær. Að sögn Aðalsteins Rúnars Friðþjófssonar skipstjóra tók skipið fimm lagnir í túrnum. Veiðarnar hófust í Suðurkantinum við Belgableyðuna áður en haldið var í Jökuldýpið.

„Við byrjuðum í Suðurkantinum við hliðina á Belgableyðunni en héldum síðan í Jökuldýpið. Aflinn var mest keila og karfi. Nú er sjómannadagshelgi framundan og allir kátir og glaðir,“ segir Aðalsteinn Rúnar.

Páll Jónsson GK landaði rúmlega 80 tonnum í Grindavík í morgun. Skipið var við veiðar suður á Fjöllum, um 70 mílur suðvestur af Reykjanestá, og var aflinn að langmestu leyti keila.

Benedikt Jónsson skipstjóri segir að keiluveiðin hafi verið sérstaklega ánægjuleg þar sem skipið hafi ekki fengið keilu á þessum slóðum síðustu tvö til þrjú ár.

„Við höfum ekki fengið keilu á þessum slóðum síðastliðin tvö eða þrjú ár þannig að keiluveiðin núna gladdi okkur mjög. Á þessum árstíma er öll áhersla lögð á að veiða keilu og löngu þannig að við erum sáttir við túrinn. Núna er áhöfnin klár í sjómannadaginn og ég veit að menn eiga eftir að skemmta sér vel yfir helgina,“ segir Benedikt.

Deila: