Fjarlægðu tæplega tonn af úrgangi

Deila:

Um 30 starfsmenn Hampiðjunnar tóku þátt í fjöruhreinsun í samstarfi við Bláa herinn við Junkaragerði á Reykjanesi þann 29. maí. Svæðið hafði ekki áður verið hreinsað og söfnuðust alls um 1.000 kíló af úrgangi í aðgerðinni.

Samkvæmt tilkynningu frá Hampiðjunni reyndust aðstæður til hreinsunar góðar, bæði vegna aðgengis og veðurs. Af þeim úrgangi sem safnaðist voru 300 kíló af veiðarfærum, 60 kíló af málmum, 10 kíló af spilliefnum og 630 kíló af öðrum grófum úrgangi.

„Það er ánægjulegt að sjá hversu margt starfsfólk Hampiðjunnar tekur þátt í verkefnum sem þessum. Við leggjum áherslu á að taka virkan þátt í verkefnum sem tengjast hafinu og umhverfinu, enda er það nátengt starfsemi okkar. Samstarfið við Bláa herinn hefur verið farsælt í gegnum árin og við erum stolt af því að styðja við það mikilvæga starf sem þar er unnið,“ segir Hjörtur Erlendsson forstjóri Hampiðjunnar í tilkynningunni.

Hampiðjan hefur um árabil stutt starfsemi Bláa hersins og er aðalstyrktaraðili verkefnisins. Samstarfið byggir á sameiginlegri sýn um mikilvægi þess að draga úr mengun sjávar og bæta umgengni við náttúruna.

„Það skiptir miklu máli að fá fyrirtæki eins og Hampiðjuna með í verkefni af þessu tagi. Auk þess að vinnan sjálf skili góðum árangri skapar þátttakan aukna vitund um mikilvægi þess að hlúa að strandlengjunni og náttúrunni í kringum okkur. Svo finnst mér þessi dagur með starfsfólki Hampiðjunnar skemmtilegasti hreinsunardagur ársins og hann er alltaf mikið tilhlökkunarefni,“ segir Tómas Knútsson stofnandi Bláa hersins.

Deila: