Ráðherra fór í sjóinn

Deila:

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Jón Gunnar Jónsson forstjóri Samgöngustofu tóku nýverið þátt í hluta þeirrar öryggisþjálfunar sem sjómenn þurfa að ljúka til að geta verið lögskráðir í áhöfn skips. Þeir mættu í kennslustund um borð í Sæbjörgu, skólaskipi Slysavarnaskóla sjómanna, þar sem þeir meðal annars stukku í sjóinn í Reykjavíkurhöfn og voru hífðir um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

„Það var magnað að taka þátt í þessari mikilvægu æfingu í Slysavarnaskólanum og fylgjast með einstöku fagfólki að störfum. Við höfum náð ákaflega góðum árangri við að fækka slysum og dauðsföllum á sjó og Slysavarnaskólinn á sinn mikilvæga þátt í þeim árangri,“ er haft eftir Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra í fréttinni.

Þar kemur fram að markvissar öryggisaðgerðir, bætt menntun sjófarenda, tækniframfarir og öflugt leitar- og björgunarkerfi hafi á síðustu áratugum dregið verulega úr slysum og dauðsföllum á sjó. Á síðustu tuttugu árum hafi meðalfjöldi dauðsfalla sjómanna verið eitt á ári, en á árum áður hafi fjöldi sjómanna látist árlega við störf.

Þá er fjallað um alþjóðlegt starf Íslands að bættum öryggismálum sjómanna. Ísland hefur meðal annars beitt sér fyrir gildistöku Höfðaborgarsamþykktarinnar um öryggi fiskiskipa, sem tekur formlega gildi á fyrri hluta næsta árs. Markmið samþykktarinnar er að samræma öryggiskröfur og bæta vinnuskilyrði sjómanna um allan heim.

Deila: