Sjómenn og þjóðin eiga heimtingu á gegnsæi

Deila:

Gunnar Sigurðsson formaður VM segir að sjómenn og samfélagið allt eigi heimtingu á því að gagnsæi og réttlæti ríki við verðlagningu sjávarafla. Þetta kemur fram í pistli hans á vef VM þar sem hann fjallar um verðlagningu afla, hlutdeild sjómanna í verðmætum sjávarútvegsins og eignasöfnun stærstu útgerðarfélaga landsins.

Gunnar bendir á að mikill verðmunur hafi komið í ljós á verðlagningu uppsjávarafla hér á landi og í Færeyjum. Hann segir að afleiðingarnar snerti ekki aðeins sjómenn heldur samfélagið í heild.

„Þegar aflaverð er skráð undir raunvirði bitnar það ekki aðeins á sjómönnum. Það bitnar á hafnarsjóðum, sveitarfélögum og ríkissjóði – á samfélaginu öllu. Undirverðlagning dregur úr tekjum samfélagsins af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar,“ skrifar Gunnar.

Hann segir að verðmunurinn veki upp spurningar um hvort verðmæti séu færð til innan samstæðna með þeim afleiðingum að sjómenn og samfélagið fái minni hlut en eðlilegt sé. Þá telur hann tímabært að endurskoða núverandi fyrirkomulag verðlagningar á uppsjávarfiski.

„Í mínum huga er enginn vafi á því að tímabært sé að segja upp verðsamningum á uppsjávarfiski og fara í grundvallarendurskoðun á þessu kerfi. Sjómenn eiga ekki að þurfa að sætta sig við verðlagningu sem þeir hvorki skilja né geta sannreynt.“

Í pistlinum fjallar Gunnar einnig um niðurstöður skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um eignasöfnun stærstu útgerðarfélaga landsins og segir þær sýna hversu mikill auður hafi safnast á fárra hendur.

„Sjávarauðlindin er sameign þjóðarinnar. Hún á ekki að vera tæki til þess að dæla verðmætum í eignarhaldsvefi örfárra stórfyrirtækja,“ segir Gunnar.

Deila: