„Aðsóknin hefur verið mjög góð“

Á bilinu 140–170 manns stunda að jafnaði nám við Skipstjórnarskólann, flestir í fjarnámi. Á dögunum útskrifuðust 15 skipstjórar, þar af 13 af C- og D-stigi. Á meðal þeirra var nemandi með meðaleinkunnina 9,88.
„Þetta hefur gengið mjög vel. Við höfum verið með allt að 170 nemendur í skólanum undanfarin ár. Við sáum aðeins samdrátt á síðasta ári og mér sýnist staðan vera svipuð á þessu ári. Þetta sveiflast í takt við þjóðfélagsaðstæður og efnahagshorfur,“ segir Víglundur Laxdal Sverrisson skólastjóri Skipstjórnarskólans í viðtali í nýju tölublaði Sóknarfæris.
Þar segir hann jafnframt: „Ég man ekki eftir því að nemandi hafi áður útskrifast með svona háa einkunn. Hann stóð sig frábærlega. Þrír úr þessum 15 manna hópi unnu sérstaklega náið saman og þeir fengu allir mjög háar einkunnir.“
Í greininni er meðal annars fjallað um góða aðsókn að skipstjórnarnámi, þar sem um 70 prósent nemenda stunda fjarnám, auk þess sem tugir nemenda sækja árlega smáskipanám. Einnig er sagt frá nýju leiðtoganámi í hafgæslu sem verður kennt á háskólastigi í samstarfi Landhelgisgæslunnar, Tækniskólans og Háskólans á Bifröst.


