Fjölnir með 280 tonn í maí

Krókaaflamarksbáturinn Fjölnir GK gerði það gott í maí en aflinn nam alls 280 tonnum sem er mesti mánaðarafli í sögu bátsins. Fyrri hluta mánaðarins var veitt frá Grindavík en síðan var haldið austur fyrir land þar sem landað hefur verið í Neskaupstað og á Djúpavogi.
„Maímánuður var virkilega góður og hann er metmánuður hjá okkur. Vel gekk að veiða syðra fyrri hluta mánaðarins og síðan hefur afli verið mjög góður hérna fyrir austan,“ segir Júlíus Magnús Sigurðsson skipstjóri í viðtali á vef Síldarvinnslunnar.
Í fréttinni kemur fram að Fjölnir hafi undanfarið einkum verið við veiðar í Gullkistunni austur af Norðfjarðarhorni og einnig á Hornflákanum. Vel hefur gengið í júnímánuði og eftir fyrstu fjóra róðrana var aflinn kominn yfir 50 tonn. Í síðasta róðri fyrir sjómannadag kom báturinn að landi með fullfermi, alls 17 tonn.
Að sögn Júlíusar verður Fjölnir við veiðar fyrir austan fram í júlí þegar báturinn fer í slipp. Að því loknu er stefnt að því að halda aftur til veiða frá Neskaupstað um tíma.
Mynd/Eyjólfur Vilbergsson


