Skoða þátttöku í nýju hafrannsóknaverkefni ESB

Ísland gæti tekið þátt í nýju samevrópsku verkefni um hafrannsóknir og vöktun eftir að Bandaríkjastjórn ákvað að fjarlægja hundruð mælitækja úr hafinu. Vísindamenn hafa reitt sig á tækin til þess að fylgjast með veltihringrás Atlantshafsins (AMOC), sem hefur gríðarlega þýðingu fyrir veðurfar og búsetuskilyrði við Norður-Atlantshaf. Um þetta er fjallað á Vísi.
„Við erum að leita leiða til að styrkja okkar þekkingargrunn og það gerum við best með auknu alþjóðlegu samstarfi,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í fréttinni. Hann segir stýrihóp stjórnvalda um AMOC meðal annars skoða þátttöku Íslands í nýju vöktunar- og rannsóknaverkefni Evrópusambandsins, EU Ocean Eye.
Í fréttinni kemur fram að bandarísk stjórnvöld hafi ákveðið að taka úr notkun hátt í þúsund mælitæki sem fylgjast með meðal annars sjávarhita, hafstraumum og upptöku koltvísýrings í hafi. Eitt þessara tækja er staðsett í Grænlandshafi á milli Íslands og Grænlands og hefur verið nýtt við rannsóknir á veltihringrás Atlantshafsins.
Jóhann Páll segir rannsóknir og vöktun á hafinu nauðsynlegar fyrir ábyrga ákvarðanatöku um framtíðaröryggi þjóðarinnar. Vaxandi vísbendingar séu um að veltihringrásin hafi veikst vegna loftslagsbreytinga og að mögulegt hrun hennar gæti haft veruleg áhrif á hitastig og veðurfar á Íslandi og víðar í Norður-Evrópu.

