Sagan varðveitt á Hellissandi

Sjóminjasafnið á Hellissandi er í Sjómannagarðinum við Sandahraun og er þar meðal annars að finna ýmsar minjar sem tengjast útgerð áraskipa frá liðnum öldum og þar eru til sýnis áttæringarnir Bliki og Ólafur Skagfjörð. Ýmsir áhugaverðir gripir, auk mynda, eru til sýnis í safninu og má þar nefna bátavélar. Þá tilheyrir safninu endurbygging þurrabúðarinnar Þorvaldsbúðar.
„Bliki er talinn vera elsti fiskibátur sem varðveittur er á Íslandi,“ segir Þóra Olsen formaður stjórnar safnsins í viðtali í nýju tölublaði Sóknarfæris. „Hann var gefinn með því skilyrði að það yrði byggt yfir hann og er það upphafið að safninu.“
Í greininni er rakin saga safnsins og umfangsmikil uppbygging sem sjálfboðaliðar hafa staðið fyrir á undanförnum árum. Fjallað er um fjórar fastar sýningar safnsins, tengsl þess við sjávarútveg og sjómennsku á Snæfellsnesi og þær áskoranir sem fylgja rekstri þess. Þóra segir safnið hafa mikla þýðingu fyrir samfélagið og varðveislu sögu svæðisins, en jafnframt að framtíð þess velti á áframhaldandi stuðningi og áhuga á að halda starfinu áfram.
