Brim segir upp 20 manns

Brim hefur ákveðið að gera breytingar á starfsemi uppsjávarvinnslu fyrirtækisins á Vopnafirði sem munu ná til 20 starfsmanna. Breytingarnar fela í sér að auka hlut tímabundinna vertíðarstarfa í stað heilsársstarfa og taka þær gildi 1. júlí næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu hefur rekstrarumhverfi vinnslunnar tekið breytingum á undanförnum árum. Frá því bolfiskvinnslu var hætt á Vopnafirði árið 2018 hefur starfsemin orðið árstíðabundnari. Á sama tíma hafa aflaheimildir í makríl dregist saman og fyrir liggur að makrílkvóti verður verulega skertur frá fyrra ári.
Þrátt fyrir þessar breytingar bendir Brim á að fjöldi heilsársstarfa hafi verið sambærilegur og þegar bolfiskvinnslan var enn starfandi fyrir um sex árum. Að sögn fyrirtækisins var ákvörðunin tekin að undangenginni skoðun á rekstri vinnslunnar og þróun rekstrarskilyrða á síðustu árum.
Fram kemur að heilsársstörf sem breytingarnar ná til verði framvegis skipulögð sem tímabundin vertíðarstörf í takt við umfang verkefna og árstíðabundna starfsemi vinnslunnar. Jafnframt segir fyrirtækið að áfram verði leitast við að skapa heilsársstörf á Vopnafirði og að markmiðið sé að tryggja sjálfbæran rekstur til lengri tíma.
Brim segir sér ljóst að breytingarnar hafi áhrif á starfsfólk og nærsamfélagið. Haft hafi verið samráð við fulltrúa stéttarfélaga og standi þeim starfsmönnum sem breytingarnar ná til til boða samtöl um næstu skref og möguleika á vertíðarstörfum hjá fyrirtækinu.
